Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Bylting breytir ríkisstjórninni

Áhugaverðir tímar, í fyrsta skipti á Íslandi skila mótmæli endurnýjun á æðstu embættum þjóðarinnar.

Gott að valdið er enn hjá fólkinu. Gott vegarnesti fyrir stjórnmálamenn sem vilja byggja upp Nýtt Ísland.


mbl.is Falið að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsla við Forsetavaldið?

Eru menn hræddir við Forsetavaldið? Afar skrýtið því hann er eini embættismaður þjóðarinnar sem kosinn er beinni kosningu og ætti því að vera sá maður er mest traust nyti við aðstæður sem þessar.

Enda gerir allt skriflegt lagaumhverfi Forsetans honum kleift að hlutast til framkvæmdavaldið eins og honum þykir hæfa.

Hvað sem fólki finnst að eigi að vera hlutverk forseta miðað við venjur um að hann haldi sér á mottunni þá reynir fyrst á Forsetann þegar aðrir, sem eiga að stjórna, geta það ekki. Afar erfitt hefur hins vegar verið að mynda venjur á þeim tæpu 65 árum sem lýðveldið hefur starfað. Venjur myndast við aðstæður sem þessar og mér finnst Hr. Ólafur Ragnar Grímsson standa sig með prýði við að færa Forsetaembættið á hærri virðingarstall.

jeben... svo er bara að kjósa rétt í næstu kosningum.


mbl.is Skapa þarf samfélagslegan frið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanþingsstjórn

Nú mæðir á Forsetanum af skapa sátt í landinu.

Ætli ekki sé best fram að kosningum að hafa utanþingsstjórn!

Nóg er til af fagmönnum í heiminum til ad halda skipinu á floti í 3 mánuði fram að kosningum.


mbl.is „Þurfum öfluga starfsstjórn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnufrið til að gera hvað?

Vinnufriður er ekki til neins ef hann er ekki notaður til neins!

Þegar dagskrá Alþingis er ekki merkilegri en þetta...

1. Óundirbúinn fyrirspurnatími.
2. Vátryggingastarfsemi
3. Greiðslur til líffæragjafa
4. Sala áfengis og tóbaks
5. Olíugjald og kílómetragjald .
6. Andstaða við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu
7. Tóbaksvarnir
8. Stjórnarskipunarlög
9. Prófessorsembætti á sviði byggðasafna og byggðafræða
10. Skipafriðunarsjóður
11. Áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjónustu 
12. Umferðarlög
13. Fjármálafyrirtæki (kynjahlutföll í stjórnum) 

Allt góð og gild mál en ekki þegar gjaldþrot blasir við. Vinnufrið verður að nota í eitthvað af viti.


mbl.is Mikilvægt að stjórnin fái vinnufrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin fær að ákveða

Þetta er afar góð niðurstaða.
mbl.is Framsókn vill sækja um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlismassi vatns óbreyttur

Hversu mikið getur gengið sveiflast í spennitreyjunni? Fyrst þarf að tilgreina það, svo er hægt að flytja "fréttir" af breytingum á genginu.
mbl.is Litlar breytingar á gengi krónunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán með veði í sjálfum bréfunum.

Jeben

Klárt mál að lánað hefur verið fyrir þessari fjárfestingu, með veði í bréfunum.

Svo þegar allt verður verðlaust verður að afskrifa lánið, því engar eignir eru í íslenska félagi Katarsins.

Afar sniðugt og lýsir mikillar "snilli" endurskoðenda og bankamanna.

Spurning hvort ekki þurfi að breyta reglum þannig að það verði að komi fram í tilkynningum til kauphallar hvort um skuldsett kaup sé að ræða eða ekki.


mbl.is 25 milljarða króna greiðsla týnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klaufar

Þeir eiga enn eftir að átta sig á því að ef helstu auðjöfrar eiga fjölmiðlana bara, gerist þessi ritskoðun sjálfkrafa og án strits.

Það hefur gengið vel á vesturlöndum, bara spurning um tíma hvenær þeir átta sig.


mbl.is Kínversk stjórnvöld loka vefsíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð fylgi vörumerki?

Smá lögfræðilegar vangaveltur, af hverju er ábyrgð einungis tengd kennitölum en ekki vörumerkjum búða?

Af hverju skiptir sýnilegt nafn fyrirtækja engu máli, í lögfræðilegu tilliti?  


mbl.is Erfitt að sækja rétt eftir eigendaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju jókst kostnaður?

Dæmigert fyrir gamla Ísland, aldrei kafað undir yfirborðið varðandi tölfræði um rekstur.

 

Er þessi aukning tilkomin vegna aukins kostnaðar á öll lyf?

Eða aukin kostnaður ákveðinna lyfja?

Eru það ný lyf eða gömul?

 

3 spurningar sem hefðu breytt fréttinni úr þvaðri í eitthvað sem myndi upplýsa og bæta samfélagið. 


mbl.is S-lyfjakostnaður jókst um 39,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband