Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

Lesa þetta bara handvirkt

Fyrst vélarnar ráða ekki við verkefnið þarf bara að lesa þetta handvirkt. Það gefur auga leið, varla viljum við henda út atkvæði í lýðræðiskosningu vegna þess að einhver vél er biluð?

Lýðræðið byggir ekki á að kosningavélar séu í lagi.


mbl.is Skilja ekki „hrufóttu“ atkvæðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einungis 6%, slappt

Við þurfum að herða okkur!

Í CBS í Kaupmannahöfn er hlutfallið "einungis 13%" og áætlanir uppi um að fjölga þeim markvisst næstu árin. Það er pressa frá stjórn skólans að þetta hlutfall verði komið uppí 20% innan fárra ára. Ástæðan er fyrst og fremst fjárhagsleg ásamt því að talið er að gæði náms muni aukast með meiri kröfum ferðandi nemenda.

Svipuð umræða er hér í CBS um enskunotkun í skólanum á kostnað dönskunnar. Þetta er orðið þannig núna að vel og skilmerkilega er skilið á milli náms á ensku og náms á dönsku í öllu kynningarefni og innra starf skólans hefur líka orðið fyrir áhrifum af þessu. En bakendinn og öll skriffinskan er einungis á dönsku og þar er meðvitað reynt að halda enskunni úti.

Það sem háskólasamfélagið gerir varðandi þessa þróun næstu árin mun hafa mikil áhrif á þróun háskólastarfsins. Loka skólum eða stækka!


mbl.is Fagna umræðu um nám á ensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband