Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Ólafur F****** Magnússon

Þessi forni fjandi Sjálfstæðisflokksins er nú orðinn bjargvættur hans.

Reyndar er Ólafur F (veit ekki fyrir hvað það stendur þess vegna skrifaði ég stjörnur í fyrirsögn:) ansi þunnur meirihluti og í raun verður erfitt fyrir hann að útskýra af hverju þessi flutningur er settur í gang.


Sagnfræðilegt voðaverk en ekki einsdæmi.

Mestur hluti gagna síðustu ára, sem varpar nýju ljósi á eitthvað, hefur horfið úr tölvukerfum um allan heim. Þetta hefur flest verið gert með vitund og vilja allra sem einhverju skipta.

Ekki eins og fornleifafræðingar hafa getið skoðað maga mýrarbúa munu fornleifafræðingar geta skoðað breytingar á neyslumynstri kjarnafjölskyldunnar í gegnum greiðslukorta upplýsingar eftir 1000 ár. Ekki gott fyrir framtíðar Jón.

Þessar bókabrennur verður að stoppa. Hvað með að stofna sjötta valdið?

  1. Löggjafavaldið
  2. Framkvæmdavaldið
  3. Dómsvaldið
  4. Fjölmiðlar
  5. Fólkið
  6. Upplýsingavaldið

 Alltaf einhver sem ber ábyrgð á því að geyma upplýsingar ríkisins. Leynd aflétt eftir 50 ár á hvert byte? Það er allavega óþolandi að hægt sé að eyða út sagnfræðilegru slúðri.

Hugsið ykkur bara þegar skjalasafn Vatikansins verður opnað!


mbl.is Tölvugögnum Hvíta hússins líklega eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stallworth betri í Madden '08.

Ég er búinn að vera að spila Madden '08 með Patriots síðustu daga, Brady er náttúrulega snillingur að senda boltann og allt það en mér finnst Moss ekki ná að grípa eins vel og Donte' Stallworth sem á mínu tímabili er búinn að ná 30 snertimörkum í 7 leikjum.  Það er alveg sama hvar hann er á vellinum hann nær alltaf að koma sér upp í loftið fyrir framan alla og grípa boltann. Moss aftur á móti kemur sér ekki nægilega vel fyrir framan varnarmennina og bíður frekar eftir að boltinn rati til hans.

En kannski vanmátu EA menn Moss þegar þeir stilltu inn styrkleika hans. Eða sendingarnar hjá Brady í raunveruleikanum eru kannski bara miklu betri?

Gaman að fá frétt um Amerískan ruðning, sérstaklega þegar ég er orðinn háður Madden.


mbl.is Daðrað við fullkomnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband