Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
Markhópur
Miðvikudagur, 28. nóvember 2007
Bandarískir fjárfestar í Frakklandi? Hvað ætli það sé breiður hópur fólks?
Annars er alltaf varhugavert að birta svona fréttir, þær þjóna augljóslega einhverjum tilgangi. Ætli fólk eigi að hugsa "já gott að allir valdhafar á vesturlöndum séu núna vinir og sammála um óvini sína".
Bandarískir fjárfestar hrifnir af Sarkozy | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vona að sjálfstæðisflokkurinn frétti ekki af þessu?
Laugardagur, 24. nóvember 2007
Þeir gætu viljað hætta við.
Glitnir í samstarf við indverskt orkufyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er að?
Laugardagur, 24. nóvember 2007
Af hverju fær fólk sér ekki ódýrari tösku erlendis fyrst það er á annað borð að fara til útlanda til að versla glingur?
Stórar töskur víða uppseldar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fíkniefnakönnunin.
Þriðjudagur, 20. nóvember 2007
Ég setti upp skoðanakönnun á síðuna varðandi Fíkniefni. Skemmst er frá því að segja að meirihluti lesenda þessa blogs eru fylgjandi því að gras verði leyfilegt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Flopp-y
Þriðjudagur, 20. nóvember 2007
Af hverju þarf að senda tölvudiska í pósti yfirhöfuð?
Eru ekki allar svona upplýsingar á netþjónum sem ferðast ekki. Fara bara í eitt ferðalag í brennsluofninn þegar tilgangi þeirra líkur.
Tölvudiskar með persónuupplýsingum um barnabótaþega týndust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fjárhættuspil
Þriðjudagur, 20. nóvember 2007
Skrítin tilhugsun að íþrótta og æskulíðsmál standi og falli með því að fólk spili fjárhættuspil. En svona er þetta víst, sjáum bara HHÍ og Happadrætti SíBS.
Af hverju ekki að fara alla leið og leyfa regnhlífasamtökum íþrótta- og æskulýðsfélaga, menntastofnana, Stéttafélaga, Starfsmannafélaga og góðgerðastofnana að reka allar tegundir fjárhættuspils? Þá þyrfti ÍBS ekki að troða sér inn í starfssemi UMFÍ.
Allavega er greinilegt að það verði að móta smá stefna til framtíðar um hvernig þessi samfélagsþjónusta eigi að vera rekin.
Barist um lottópeningana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins...
Mánudagur, 19. nóvember 2007
sjáum við vonandi fram á breytta tíma í fangelsismálum BNA, sem hafa því miður verið fyrirmynd misvitra embættismanna um allan heim.
7,9,13
Bandaríska fangelsiskerfið dýrt og óskilvirkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rannsaka betur
Mánudagur, 19. nóvember 2007
Kannabis gegn brjóstakrabbameini | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hárrétt
Laugardagur, 17. nóvember 2007
Viljastyrkur ungs fólks skiptir mestu í baráttunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eignamyndun
Laugardagur, 17. nóvember 2007
Back in the days var pólítískt álitið að sem flestir Íslendingar þyrftu að eignast sína eigin íbúð eða hús.
Núna vita allir að venjulegt fólk getur ekki keypt sér passlega íbúð, í þessu ástandi. Þegar lánin frá bönkunum hófust jókst aðgangur að lánsfé og peningar misstu hreinlega verðgildi sitt, milljón þá er sama og þrjár-fjórar í dag.
Ætli það sé enn pólítískt álitið að Íslendingar eigi að eignast sína eigin íbúð? Til að tryggja fólki salti út á grautinn í ellinni og eitthvað í arf fyrir krakkana. Núna er meðalaldur reyndar svo hár að þegar erfðaskráin er lesin er stutt í að erfingjarnir hætti sjálfir að vinna. Einnig höfum við flest val um aukinn lífeyrissparnað sem, ef reikningsdæmin eru rétt, á að vera um sama upphæð og íbúð. Hins vegar má ekki gleyma því að maður borgar alltaf fyrir húsnæði, bara spurning hvort það er í leigu eða í uppí lánið.
Allavega vona ég að samfélagið (íbúðalánasjóður) muni áfram tryggja eignamyndun almennings um ókomna framtíð.
Bendi fólki á að kíkja á http://framsokn.is/, þar eru fróðlegar greinar um þetta ástand.
Launin 680.000 til íbúðarkaupa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)