Tilgangslaus vinna
Fimmtudagur, 16. október 2008
Landið brennur og löggan hirðir smáglæpamenn, það er eitthvað að þessari forgangsröðun.
Umfangsmikil fíkniefnaframleiðsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki sammála, löggan lagar ekki fjármálkreppuna en hún reynir að halda glæpalýðnum í skefjum. Við megum ekki gleyma smátriðunum þó sum vandamál séu stór.
Sigurður Sigurðarson, 16.10.2008 kl. 16:04
Hvað er að henni? Hvað á lögreglan að vera að gera að þínu mati? og hvernig getur þú sett þetta undir sama hatt og búðahnupl? (fyrst þú kallar þetta smáglæpamenn).
María 16.10.2008 kl. 16:05
Þetta er eitthvað aðeins meira en smáglæpamenn. Þarna er verið að tala um fíkniefnaframleiðslu og það er nokkuð stórt mál.
Lögreglan á skilið klapp á bakið fyrir þessa vinnu.
Elli 16.10.2008 kl. 16:11
Að mínu mati ætti samfélagið að leyfa fíkniefnaviðskipti en styrkja forvarnir, nota sömu aðferðina og hefur virkað ágætlega á sígarettureykingar.
Lögreglan getur gert annað og þýðingarmeira fyrir samfélagið með því t.d. að minnka ekki efnahagsbrotadeildina eins og gert hefur verið undanfarin ár. Við hefðum kannski grætt eitthvað á því að hafa hana aðeins sterkari undanfarið? Í staðin höfum við lögreglumenn sem dandalast í rassíur og sveifla stórum byssum.
Orsok vandans er neyslan, ekki framleiðslan. Ef fólk nennir ekki að pæla í því er ekki til neins að gera upptæk tonn af dufti.
Jón Finnbogason, 17.10.2008 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.