Færsluflokkur: Bloggar

Hryðjuverkamenn?

Hvenær fær Kúrdistan sjálfsstæði?

Þetta er farið að minna á baráttu Íra við Englendinga. Þessu verður að linna.


mbl.is Yfir 150 kúrdískir uppreisnarmenn felldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næstu kosningar

Það verður skrýtið fyrir okkur framsóknarmenn að fara í næstu kosningar með sömu auglýsingum og fyrir kosningarnar '95.

Það stefnir nefnilega allt í að svipað ástand verði í landinu.  


mbl.is Guðni: Það er runnin upp ögurstund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rán

Hvað eru yfirvöld að ræna aumingja manninn?

Fer þessari vitleysu ekki að ljúka, það vita allir þetta er tilgangslaust með öllu.


mbl.is Með fíkniefni innvortis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styð Stefán.

Það verður glæsilegt að fá Stefán Pálsson í þetta embætti.

Þjóðinni verður sómi sýndur að ráða hann. 


mbl.is Formaður SHA sækir um forstjórastarf Varnarmálastofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin vilji fyrir vopnaðri lögreglu

Það hefur sýnt sig að GAS GAS GAS hefur alveg tilætluð áhrif. Lögreglan þarf að muna eftir því að  þjóðin hefur ekki áhuga á vopnaðri lögreglu. Víkingasveitin þarf að sjálfssögðu að geta brugðist við í undantekningartilvikum, enda ber hún byssur. 

        Það  þarf að sýna rökfærsluna á bak við þessa þörf, fólkið í landinu verður að skilja af hverju lögreglan telur sig þurfa rafbyssur. Eru einhver vopn í vopnaskápnum núþegar sem gætu nýst í staðin?

Svo talar lögreglan um að þurfa auka fjárveitingar, þá er ekki úr vegi að skoða í hvað fara peningarnir sem lögreglan fær í dag.

        Það þarf að sýna tölur ef það á að breyta einhverju, fólkið í landinu verður að skilja af hverju lögreglan telur sig vinna fyrir lítið. Í hvað fara peningarnir og gætu þeir farið í eitthvað annað?


mbl.is Allir lögreglumenn fái rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangslaus vinna

Fréttin á að vera að maður ók undir áhrifum, það er alvarlegt.

Hitt er fáránlegt, hvaða tilgangsleysi er þetta að  hirða dót af fólki! Ekki myndi ég vilja að lögreglan kæmi heim til mín og gerði upptæka dvd diska því ég hefði ekki gott af því að horfa svona mikið á sjónvarp.


mbl.is Kannabisefni fundust við húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvittanir ættu að skrást miðlægt

Það vill enginn menga umhverfið með því að taka kvittunina. Ríkið ætti að koma til móts við fólk og gera fyrirtækjum skylt að skrá allar kvittanir miðlægt í Þjóðskjalasafninu.

Þá gæti maður til dæmis bara prentað út allar sínar bensínkvittanir og sent þær í pósti til lögfræðings, jafnvel í tölvupósti.

Notum tæknina.


mbl.is Hundruð gætu krafið olíufélögin um bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nautn að spara

Ennþá skemmtilegra er að búa til hagfræðihugtök.

Allir ættu að vera meðvitaðir um sinn Eyðslutími (Spending Span) þ.e. hversu lengi getur þú lifað ef þú færð engar tekjur.

Fyrsta skref er sjálfssagt að hafa þetta yfir núlli en raunverulega þyrfti Eyðslutíminn að vera talinn í mánuðum ef ekki árum.


mbl.is Spá 3,2% atvinnuleysi á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dexter drepur Warrick

Hversu flott væri það? Fyrst þyrfti Warrick náttúrulega að drepa einhvern svo hann verði hæft fórnarlamb.
mbl.is CSI leikari handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitarhundar finna sér hlutverk

Í þetta getur lögreglan notað fíkniefnahundana þegar fíkniefni verða leyfð sem verslunarvara.
mbl.is Röktu slóð krotaranna frá miðborg upp í Hlíðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband