100 á 100

Á kosningavef Sjálfsstæðisflokksins er tekinn saman skemmtilegur listi yfir 100 aðgerðir sem Sjálfsstæðismenn segjast hafa gripið til í kjölfar hrunsins, á 100 dögum til að halda í stílinn. Þetta er áhugaverð lesning, ég setti smá athugasemd við hvern punkt. Það væri óskandi að fleiri myndu rýna betur ofan í þetta og sannreyna.

Flest af meintum "aðgerðum" er hálfgerð froða en nokkrir punktar finnast inn á milli.

1.Setning neyðarlaganna veitti FME heimild til að taka yfir starfsemi banka
a.Ásamt því að gefa til kynna að innlendir kröfuhafar væru rétthærri erlendum, sem setti okkur endanlega á hliðina.
2.Settur var upp upplýsingavefurinn www.island.is með miklu magni af upplýsingum um efnahagsvandann og áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
a.Þarna vantaði mestmegnis allar upplýsingar, t.d. skýrar tölur um heildarskuldir
3.Símaver var sett upp í utanríkisráðuneytinu - 30 starfsmenn unnu á vöktum við símsvörun frá kl. 8 - 22 alla virka daga fyrstu vikurnar eftir hrunið
a.Nauðsynlegt
4.Fjölmiðlamiðstöð var opnuð fyrir erlenda blaðamenn í Miðbæjarskólanum frá 7. - 15. október
a.Nauðsynlegt
5.Nýtt embætti sérstaks saksóknara var stofnað
a.Eftir dúk og disk
6.Sérstök rannsóknarnefnd var skipuð til að rannsaka aðdraganda hruns bankanna
a.Eftir dúk og disk
7.Frumvarp dómsmálaráðherra um skuldaaðlögun hefur verið kynnt þingflokkum
a.En Samfylkingin nennti ekki að hlusta
8.Samið var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lánafyrirgreiðslu og efnahagsáætlun til tveggja ára
a.Skilmálum haldið leyndum
9.Alþjóðlegt matsfyrirtæki, Oliver Wyman, var fengið til að vinna endurmat á eignum og skuldum nýju bankanna
a.Aldrei sagt frá því opinberlega
10.Tilmælum var beint til viðskiptabankanna í eigu ríkisins um að frysta afborganir skuldara á myntkörfulánum
a.Bankarnir hlustu ekki, þó eigendur skipuðu þeim
11.Óskað var eftir samstarfi við stjórnvöld í Lúxemborg um að veita rannsóknaraðilum nauðsynlegan aðgang að gögnum
a.Kom aldrei upp á yfirborðið
12.Dráttarvextir voru lækkaðir með lagabreytingu
a.Úr hverju í hvað?
13.Víðtæk endurskoðun hefur verið hafin á löggjöf á fjármálamarkaði
a.Nauðsynlegt en afar ódýr setning samt
14.Reglugerð var sett um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar
a.Gott
15.Vinnumálastofnun var efld vegna aukins álags
a.Gott
16.Atvinnuleysisbætur greiddar á móti hlutastarfi til að sporna gegn atvinnuleysi
a.Gott
17.Réttur sjálfstætt starfandi einstaklinga til atvinnuleysisbóta var rýmkaður
a.Gott
18.Atvinnuleysisbtækur voru hækkaðar um áramót
a.Flott
19.Ýmis vinnumarkaðsúrræði voru efld
a.Vantaði eitt uppí 100?
20.Réttur fólks til atvinnuleysisbóta samhliða þátttöku í ýmsum verkefnum var tryggður
a.Hmm kannski voru það bara 98
21.Sjálfboðaliðastörf voru viðurkennd sem virkt vinnumarkaðsúrræði
a.Og fólk fékk atvinnuleysisbætur fyrir það? Hvað þýðir þetta atriði nákvæmlega?
22.Boðið var upp á atvinnutengda endurhæfingu
a.Hmm hvað er það?
23.Tryggður var réttur til atvinnuleysisbóta samhliða námi
a.Flott
24.Skilyrði fyrir búferlastyrkjum voru rýmkuð
a.Búferlastyrkir? Hvað er það?
25.Starfshópur var skipaður um leiðir til að sporna við atvinnuleysi
a.Nauðsynlegt
26.Ný vísitala tekin upp við reikning á húsnæðislánum
a.Sem gerði hvað?
27.Íbúðalánasjóði voru veitt úrræði til að bregðast við vegna greiðsluvanda einstaklinga
a.Nauðsynlegt. Eins gott þið voruð ekki búnir að leggja hann niður
28.Tilmælum var beint til fjármálastofnana um úrræði við viðskiptavini í greiðsluerfiðleikum
a.Bankarnir hlustuðu ekki á eigendur sína og eigendurnir gerðu ekkert í því
29.Lánstími greiðsluerfiðleikalána var lengdur
a.Hvaða lán?
30.Íbúðalánasjóði var veitt heimild til að annast leigumiðlun íbúðarhúsnæðis
a.Gott, eins gott þið voruð ekki búnir að leggja hann niður
31.Íbúðalánasjóði var veitt heimild til að taka yfir íbúðaveðlán fjármálafyrirtækja
a.Gott, eins gott þið voruð ekki búnir að leggja hann niður
32.Starfsemi Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var efld
a.Gott
33.Íslendingum erlendis var veitt fjárhagsaðstoð
a.Hmmm ég bý erlendis og fékk ekkert slíkt, um átta námsmenn erlendis fengu smáaðstoð 2-3 mánuðum eftir hrun.
34.Bætur, styrkir og frítekjumark hækkuðu um 9,6%
a.Hækkaði allt um 9,6%? Áhugavert hafði ekki heyrt af þessu
35.Lágmarksframfærslutryggingar lífeyrisþega hækkuðu um 20%
a.Gott
36.Reglum breytt þannig að úttekt á séreignarsparnaði skerði ekki lengur lífeyrisgreiðslur
a.Gott
37.100.000 króna frítekjumark á atvinnutekjur örorkulífeyrisþega framlengt
a.Nauðsynlegt
38.Stimpilgjöld voru felld niður tímabundið
a.Nauðsynlegt
39.Skuldajöfnun barnabóta var felld niður
a.Nauðsynlegt
40.Skuldajöfnun vaxtabóta á móti lánum Íbúðarlánasjóðs var felld niður
a.Eins gott þið náðuð ekki að leggja íbúðarlánasjóð niður
41.Tilmælum beint til innheimtumanna um aukinn sveiganleika í samningum um gjaldfallnar skattakröfur
a.Sama atriði og 28, þetta voru semsagt bara 97 atriði
42.Heimild var veitt til að endurgreiða vörugjöld og virðisaukaskatt af útfluttum ökutækjum
a.Nauðsynlegt
43.Gjalddögum var frestað og álag á aðflutningsgjöldum, staðgreiðslu og virðisaukaskatti var lækkað
a.Hvaða gjalddögum? Hversu mikið voru gjöldin lækkuð?
44.Persónuafsláttur hækkaði ríflega
a.Hversu mikið sem hægt er að rekja til ákvarðana eftir hrun?
45.Lögum um lífeyrissjóði var breytt til að liðka fyrir stofnun endurreisnarsjóðs
a.Gott
46.Breytingar á lífeyrissjóðslögum vegna útgreiðslu séreignarsparnaðar við 60 ára aldur
a.Gott
47.Fyrirtækjum var gert kleift að gera ársreikjninga upp í erlendri mynt
a.Var það útaf hruninu?
48.Stutt var við sparisjóði með framlagi
a.Hvernig framlagi?
49.Innlausn lífeyrissparnaðar var heimiluð við 60 ára aldur
a.Gott
50.Samkeppniseftirlitið kynnti skýrslu undir titlinum „Öflug uppbygging - opnun markaða og efling atvinnustarfsemi"
a.Útaf hruninu, var þetta ekki bara rútínu skýrsla? Kommon = 96
51.Samkeppniseftirlitið beindi tíu meginreglum um samkeppni til viðskiptabanka í eigu ríkisins
a.Hvaða máli skiptir það?
52.Skýrsla Samkeppniseftirlitsins um krosseignatengsl kynnt
a.Var það útaf hruninu eða partur af skýrslu sem til var á lager og átti aldrei að sýna?
53.Geðsvið Landsspítalans var eflt og veitt var sálfræðiráðgjöf vegna áfalls
a.Nauðsynlegt
54.Bráðaþjónusta við fólk sem lenti í tímabundnum erfiðleikum vegna umrótsins
a.Hvernig bráðaþjónustu = 95
55.Heilbrigðisstofnanir voru settar í viðbragðsstöðu
a.Hahaha = 94
56.Sameiginlegum tilmælum var beint til stofnana heilbrigðisráðuneytisins vegna velferðar barna
a.Svosum gott, engin aðgerð en gott samt
57.Boðið var upp á fyrirlestra um viðbrögð vegna álags, kvíða, depurðar og svefnerfiðleika
a.Nauðsynlegt
58.Heilbrigðisstofnanir greiddu lyfjafyrirtækjum upp skuldir svo fyrirtækin gætu haldið uppi lyfjadreifingu í landinu
a.Nauðsynlegt
59.Styrkir Sjúkratrygginga Íslands vegna hjálpartækja hækkaðir, m.a. vegna gengis íslensku krónunnar
a.Nauðsynlegt
60.Styrkir Sjúkratrygginga v. næringarefna og sérfæðis voru hækkaðir
a.Nauðsynlegt
61.Sprotafyrirtæki fengu heimild til að ráða starfsmenn af atvinnuleysisskrá án þess að bætur yrðu skertar
a.Nauðsynlegt
62.Framlög í Tækniþróunarsjóð voru aukin
a.Hversu mikið?
63.Sérstakir styrkir voru skilgreindir hjá Tækniþróunarsjóði til að koma til móts við þarfir í núverandi efnahagsástandi
a.Sama og 62. = 93
64.Famlög voru tryggð til Frumtaks-samlagssjóðs sem fjárfestir í lengra komnum sprotafyrirtækjum
a.Nauðsynlegt
65.Komið var á fót frumkvöðlasetrum í samstarfi við Landsbankann og Glitni
a.Sama og 64 = 92
66.Fjárfestingasamningur gerður vegna álvers í Helguvík
a.Nauðsynlegt
67.Auknum fjármunum veitt til kynningar á Íslandi sem ferðamannastað
a.Nauðsynlegt
68.Heimild til að veita aukanámslán fyrir tveggja mánaða framfærslu hjá nemum erlendis
a.Nauðsynlegt, en þetta varð aldrei að raunveruleika
69.Hækkun á vaxtastyrk vegna aukins fjármagnskostnaðar á yfirdráttarlán námsmanna
a.Nauðsynlegt
70.Skerðingarhlutfall námslána var lækkað úr 10% í 5%
a.Fyrir fólk sem ætlar í nám, ekki fólk sem er í námi
71.Forsendum í gengisútreikningum námslána var breytt - tryggði um 23% hækkun í þágu námsmanna
a.Bara fyrir þá sem eru í skiptinámi erlendis, ekki fyrir neinn venjulegan námsmann
72.Aukinn sveigjanleiki var veittur vegna greiðsluerfiðleika námsmanna
a.Nauðsynlegt
73.Tekjutengdar afborganir af námslánum voru lækkaðar
a.Nauðsynlegt en sama og 72. =91
74.Settur var á fót bakhópur til að fara yfir úrræði og námsframboð á framhaldsskólastigi
a.Útaf hruninu sérstaklega?
75.Tryggðar voru sveigjanlegar fjárveitingar til framhaldsskóla á vorönn 2009 til að allir sem þess óskuðu fengju inngöngu í framhaldsskóla
a.Nauðsynlegt
76.Sérstök verkefnisstjórn var skipuð til að leggja drög að stefnumótun ráðuneytisins á sviði háskólamála og vísinda vegna breyttra aðstæðna
a.Nefnd? Kommon
77.Stofnaðir voru þrír vinnuhópar sem var falið að leggja fram tillögur um aðgerðir sem leitt gætu til aukinnar hagræðingar í öllum málaflokkum
a.Úff önnur nefnd
78.Lögum var breytt til að losa sveitarfélög undan því að greiða verðbætur á byggingarlóðir sem skilað er
a.Redding
79.Lögveð vegna fasteignaskatts var lengt úr tveimur árum í fjögur
a.Gott
80.Heimild var veitt í lögum til hækkunar útsvars sveitarfélaga og auknu fé sett í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
a.Nauðsynlegt
81.Mannaflsfrekar framkvæmdir voru settar í forgang við úthlutun fjár til nýrra samgönguframkvæmda
a.Nauðsynlegt, en samfylkingin á þetta.
82.Nefnd skipuð um átak í þorskeldi með áherslu á seiðaeldi
a.Sérstaklega útaf hruninu?
83.Ákveðið að AVS-rannsóknasjóður geti stutt við rannsókna- og þróunarstarf í kræklingarækt
a.Sérstaklega útaf hruninu?
84.MATÍS ohf. bauð fram aðstöðu fyrir meistaranema í samstarfi við fyrirtæki, sjóði og háskóla
a.Nauðsynlegt
85.AVS-rannsóknasjóður lagði aukna áherslu á styttri verkefni og slíkar umsóknir njóta forgangs við úthlutun á styrkjum
a.Nauðsynlegt
86.Hámarksafli í þorski var aukinn um 30 þúsund tonn, úr 130 þúsund tonnum í 160 þúsund tonn
a.Nauðsynlegt
87.Hvalveiðar í atvinnuskyni hafa verið heimilaðar til ársins 2013
a.Nauðsynlegt
88.Íslensk stjórnvöld hafa staðið fyrir fjölda funda í sendiráðum erlendis til að útskýra stöðu mála á Íslandi
a.Er regluleg starfssemi nú orðin að sérstökum aðgerðum?
89.Aðstoð var veitt til Íslendinga erlendis, t.d. veittu sendiskrifstofur Íslendingum erlendis lán að uppfylltum ákveðinum skilyrðum
a.Nauðsynlegt, hef reyndar ekkert heyrt um þetta þó ég búi erlendis sjálfur.
90.Krónunni var fleytt samhliða því að gripið var til aðgerða til að styrkja gengi hennar og koma í veg fyrir fjármagnsflótta
a.Fleytingin var nú bara til að sýnast, í raun flýtur hún ekki
91.Virtur bankasérfræðingur, Mats Josefsson, var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna
a.Nauðsynlegt
92.Samið var við Evrópusambandið um lausn Icesave-deilunnar og tryggt að tekið verði tillit til íslenskra hagsmuna
a.Vildi ESB ekki að samið yrði við aðildarlönd beint?
93.Mikil hagræðing í ríkisrekstri umfram það sem áætlað var til þess að mæta kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ríkisfjármálum fyrir árið 2009
a.Nauðsynlegt
94.Lán allt að þremur milljörðum dollara tryggð frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, Rússlandi og Póllandi
a.Nauðsynlegt, ekki gleyma Færeyjum, svo kom lánið frá Póllandi ekki vegna áhrifa ríkisins.
95.Bankaráðum hinna nýju banka var gert að setja sér skýrar viðmiðunarreglur um fyrirgreiðslu við fyrirtæki í landinu
a.Sem er eins loðið og hægt er, þeir gera bara það sem þeim sýnist.
96.Ákveðið var að skipa óháða umboðsmenn viðskiptavina í hverjum banka
a.Nauðsynlegt
97.Lög voru sett til að heimila ríkissjóði að styðja við málsókn á hendur breskum yfirvöldum vegna beitingu hryðjuverkalaga
a.Jeben, en ekkert gert
98.Þingmenn og ráðherrar tóku á sig tímabundna launalækkun um 5-15%
a.Nauðsynleg, hefði átt að vera miklu hærra
99.Verkefnastjóri var ráðinn til að fylgja eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar og tryggja aukið upplýsingaflæði
a.Haha, hann stóð sig ekki vel:)
100.Sett var í gang vinna við málshöfðun gegn breskum stjórnvöldum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu
a.Sama og 97 = 90


mbl.is Geir gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband