"Hvar eru peningarnir?"
Fimmtudagur, 19. júní 2008
Mér sýnist ríkið vera í biðstöðu, eftir hverju er verið að bíða?
Það þarf að skipa ópólítískan Seðlabanka sem fyrst. Seðlabankinn ásamt ríkisstjórninni þarf að einbeita sér að því að:
- Tryggja stöðugleika krónunnar.
- Tryggja stöðugleika vísitölu neysluverðs.
Halda áfram með vinnu við að gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð.
- Nýta tillögur nefndar fyrrverendi forsætisráðherra, http://www.forsaetisraduneyti.is/media/frettir/Skyrsla.pdf.
Bæta samgöngur bæði milli landshluta, bæja og landa.
- Auka almenningssamgöngur á innan höfuðborgarsvæðisins og til úthverfa þess.
- Byggja lestarsamgöngur frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
- Gera strandsiglingar að raunhæfum flutningsvalkosti fyrir verslunar- og þjónustufyrirtæki.
Matvælaframleiðsla
- Stórauka matvælaframleiðslu í gróðurhúsum með útflutning í huga.
- Aðra Íslenskt, já takk herferð.
- Lækka skatta á útflutningsfyrirtæki, þar með talda útvegsmenn og bændur.
- Aðstoða bændur við að skrá lífræna framleiðslu og auka þannig söluverðmæti íslenskrar framleiðslu.
Orka
- Auka orkuframleiðslu, til að auka sérhæfða framleiðslu á fullunnum vörum til útflutnings.
- Matvæla
- Hlaða Duracell batterí
- Sólarrafhlöður
- Annað það er fólk kaupir núþegar í heiminum.
Nýsköpun
- Það er gömul saga og ný að stórfyrirtæki framtíðarinnar eru sprotafyrirtæki fortíðarinnar. Ríkisvaldið þarf að styðja enn frekar að nýsköpun með því að efla nýsköpunarsjóð.
Sorp
- Auka flokkun á sorpi til að endurvinna hráefni í aðra framleiðslu. Byrja á ruslatunnum eins og Þjóðverjar hafa þær, með mörgum götum.
Menntun
- Sækja erlenda nemendur til að stunda nám hérlendis.
Sparnaður þjóðar
- Bjóða fólki skattaafslátt ef ákveðin upphæð er sett í sparnað árlega. Gott fyrir eignastýringafyrirtæki og gott fyrir sparifjáreigendur.
Aflétta höftum
- Leyfa framleiðslu fíkniefna hér á landi, sölu og neyslu. Færa verkefni lögreglunnar til brýnni mála. Aðrar þjóðir þyrftu reyndar að fylgja í sama mánuði til að forðast að Ísland verði pyttur heimsins.
Sveiflur á gengi krónu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.