Samskipti
Föstudagur, 12. október 2007
Gærkvöldið fór í fréttalestur. Mikið gekk á í gær.
Þar sem ég er harður Framsóknarmaður er ég að sjálfssögðu ánægður með að báðir meirihlutar í Reykjavík slást um að vinna með Framsóknarmönnum. Leiðinlegt að Gísli Marteinn og Hanna Birna séu svona svekkt, þau hefðu getað haldið þessum meirihluta á lífi með því að stunda meiri samskipti beint milli manna en ekki í gegnum fjölmiðla. Þar sem ég stunda nú nám um listina við Samskipti og Upplýsingastjórnun sé ég klárlega skort á öllu því sem á að tilheyra.
En varðandi þetta REI mál þá byrjuðu Sjálfstæðismenn að stofna fyrirtækið til að stunda áhættustarfssemi fyrir OR. Núna eru þær algerlega hættir við það og að sjálfssögðu var það aldrei meiningin:)
Framsóknarflokkurinn hefur alltaf haft góða stefnu fyrir OR, sem hefur skilað Reykvíkingum góðu búi. Ég vona að þessi stefna sem Alfreð Þorsteinsson markaði með R-listanum fái að lifa áfram.
Önnur málefni eru í góðum gír, R-listinn fær að halda áfram með sín mál.
Ég bið bara til guðs að ég fái að missa af pólítískri þáttöku Gísla Marteins og Hönnu Birnu í næstu kosningum.

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.