Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Gerum þetta

Sparar samfélaginu háar fjárhæðir.
mbl.is Vill afnema fargjöld Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útsöluverð?

Sniðugt að selja allt á útsölu, þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur að því hvort útrásareignirnar geti borgað upp skuldir þjóðarinnar. Því miðað við þennan verðmiða er það útilokað.

Takk Geir og Ingibjörg.


mbl.is Glitnir í Svíþjóð seldur á útsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangslaus vinna

Landið brennur og löggan hirðir smáglæpamenn, það er eitthvað að þessari forgangsröðun.
mbl.is Umfangsmikil fíkniefnaframleiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir vinna

Ef þeir kæra hið opinbera á réttan hátt og vinna sína heimavinnu finna þeir allan skítinn sem við nennum ekki að leita að sjálf.

mbl.is Hollendingar hóta málsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smákrimmar

Nú ætti lögreglan að einbeita sér að stóru glæpamönnunum, þessi tímaeyðsla bætir ekkert.
mbl.is Fíkniefnamál upplýst á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falið fall krónunnar

Þetta þarf ekki að vera erfitt, hættið að fela fall krónunnar og þá opnast þetta allt saman.

Það eru 4 gengi í gangi, markaðsgengið hæst og hitt er gengi sem fólk í faðmlögum ákvað að væri sanngjarnt, þó það sé gersamlega úr tengslum við raunveruleikann.


mbl.is Enn vandamál á gjaldeyrismarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er kjaftæði

Róum okkur aðeins, ef ekki er hægt að nafngreina búð eru svona fréttir ekki til neins.

En ef hægt er að nafngreina búð þá ætti sendiráðið að vera á kafi í þessu.


mbl.is Rekin úr búð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgudraugurinn endurvakinn

Dýrara verður að spara krónur en að eyða þeim. Sýnist hver viti borinn maður vera hættur að nota krónuna. Blessuð sé minning hennar.
mbl.is Spáir 75% verðbólgu á næstunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins of seint í rassinn gripið

Enn eitt klúður stjórnarinnar að sækja þessa peninga ekki fyrir löngu.

mbl.is Gjaldeyrisskiptasamningar virkjaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn gerði ekkert rangt.

Þó formála og eftirmála bókar um hann sé umorðuð, er það sem eftir honum er sagt ennþá óbreytt. Þegar fylleríið stóð sem hæst hefði verið glapræði af Forsetanum, sem ekki sinnti eftirlitshlutverki, að styðja ekki við viðskipti okkar erlendis. Viðvera hans opnaði margar dyr fyrir menn.

Þar sem eftirlitið með viðskiptum okkar erlendis var ekki betra en þetta, má spyrja sig að því hvort framkvæmda- og löggjafarvaldið hafi ekki brugðist Forsetaembættinu. Það er nefnilega þeirra sem fara með völdin að axla ábyrgð. Það er ekki hægt að skella skuldinni á almannatengslafulltrúann, Forseta Lýðveldisins.

Mér finnst hann hafa gert ákkúrat það sem hefur þurft til að styðja við bakið á þjóðarsálinni, sérstaklega með þessum vinnustaðafundum nýverið.


mbl.is Forsetabók afturkölluð úr prentsmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband