Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Hvaða stælar eru þetta

Ég vona að lögreglan fái aldrei skotvogn í höndurnar.
mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangslaust

Ef einungis er unnið að því að draga úr sölu og dreifingu nást markmiðin með þessum lögguleik ekki.

Fólk finnur alltaf leiðir til að gera það sem það langar til.


mbl.is Fíkniefni fundust við húsleitir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það best?

Sjálfssagt er fyrir OR að setja upp virkjanir og framleiða rafmagn erlendis. Það er gott fyrir Ísland að  viðskiptasamningar og samskiptanet okkar sé sem þéttast og víðast. Eða eins og Alfreð sagði þegar OR byrjaði að þjónusta sumarbústaðarbyggðir á suðurlandi, þá eru íbúar Reykjavíkur með stóran hluta þessa sumarbústaða. 

Fyrst og fremst þarf að takmarka áhættu Orkuveitu Reykjavíkur af útrásarverkefnum sínum um heiminn. Ekki viljum við þurfa að greiða hærri rafmagnsreikning á Íslandi vegna valdaráns í Eþíópíu? Vegna þessa var nú REI stofnað.

Það hvort OR sé með bestu þekkingu, gáfaðasta fólkið eða sniðugustu lausnirnar á rafmagnsframleiðslu skiptir litlu máli. Það sem skiptir máli er að REI hafi sjálfstraust og bakland til að setja á fót virkjanir, framleiða rafmagn og græða á því.

Ég vona að REI haldist í eigu OR eitthvað lengur til að koma framleiðslu af stað. Einnig svo fólk átti sig á tækifærunum sem í þessu liggja, til dæmis verkaskiptingu milli OR og REI. 


mbl.is Vill að Reykjavíkurborg selji REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri íslenskukennslu

Þegar ég vann í banka var mikið um fordóma, allir héldu ég væri með gullkistu í kjallaranum. Svona er þetta bara.

Lykillinn að betri samskiptum er meiri íslenskukennsla.

Sjálfur bý ég í Danmörku og á mest samskipti við Íslendinga, kærastan mín bjó hérna þegar hún var lítil og talar mest alla dönsku sem við þurfum í okkar samskiptum við stofnanaumheiminn. Mér barst bréf frá borginni þegar við vorum nýflutt út um að nú þyrfti ég að læra dönsku, frítt. Ég nennti ekki.

En nú kann ég nokkur orð og er duglegur við að segjast bara vera frá Jótlandi ef fólk skilur mig ekki.


mbl.is „Pólska samfélagið hefur lokast dálítið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

óháð þessu máli - Veita myrtir eða rotaðir mikla aðstoð?

Áhugaverð ummæli framkvæmdavaldsins.

"Þetta eru nægilega erfið mál í rannsókn þegar brotaþoli veitir alla aðstoð. Þegar hann gerir það ekki er málið orðið ansi erfitt rannsóknar"

Ég hélt að ákæruvaldið hefði málsforræði í öllum alvarlegum málum og tæki frumkvæði að því að komast að hinu sanna?

Ef lögreglunni yrði gert að rannsaka svona mál með sömu vinnubrögðum myndu til að mynda...

1. "Nauðgun, Nauðgun (úlfur, úlfur)" hrópum verða afstýrt.

2. Mannorð brotaþola og geranda hreinsast/verður skítlegt og hið sanna kemst í ljóst.


mbl.is Ekki var brotið á stúlkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rífa húsið og rækta hveiti

Halda kannski bílskúrnum eftir til að sofa í.
mbl.is Fasteignaverð á hraðri niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þarf kæru?

Lögreglan ætti að rannsaka þetta sjálfkrafa þegar svona kemur uppá.  


mbl.is Stúlkan ætlar ekki að kæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn frjálsi markaður

.
mbl.is Vogunarsjóðir valda víða vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hentugra að flytja þetta í gámum?

Aumingja kallinn að eyðileggja efnið með því að setja það í slímugan smokk.


mbl.is Gleypti 63 smokka með eiturlyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Satt hjá Obama

Allt sem hann hefur sagt tengist vel þeirri hugmynd sem Evrópubúar hafa af Bandaríkjamönnum. Glöggt er gests augað. Einhver verður að geta talað um stöðu mála án þess að skrumskælingjarnir snúi útúr því.

Þarna finnst mér Hillary hafa stigið hliðarskref, hún hefur ekkert með að ákveða hvort Obama hafi verið að tala niður til fólks í smábæjum. Sjálf viðurkenndi hún að fólk væri "pirrað", og fyrst fólk er pirrað þá hlýtur að vera einhver reiði. Þessi reiði hefur ekki breytt stjórnarfarinu í landinu, hvert fer þessi reiði þá? Getur ekki bara vel verið að með því að beina athygli almennings að málum eins og byssueign og hjónaböndum samkynhneigðra sé verið að forðast önnur og stærri málefni?

Það gæti jafnvel gerst að ég hætti að styðja Ron Paul ef Obama fer fram fyrir Demókrata.


mbl.is Obama harmar ummæli sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband