Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Búdapest er minnisvarði

og ein fallegasta borg í heimi
mbl.is Borgir eiga ekki að vera söfn eða minnisvarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímaeyðsla

Frekar ætti að einbeita sér að því að draga úr barnaklámi eða viðlíka glæpum.
mbl.is Fíkniefni fundust við húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sovereign wealth fund

Það er alltaf gott að eiga pening.

Ég á eftir að sjá fyrir mér hvaðan peningurinn á að koma í þennan þjóðarsjóð. Við flytjum ekki út orku eins og Saudarnir eða Norðmenn gera. Í rauninni er viðskiptahalli.

Ein af leiðunum er að taka pening sem kemur af auðlindum landsins og setja í þennan sjóð, en þar sem hvorugur flokkanna var til í það á síðasta þingi þegar Framsókn viðraði hugmyndir um Auðlindasjóð, væri það talsverð breyting. 

Önnur leið er að setja útgjöld í þjóðarsjóðinn á fjárlög, hvetur Ríkið til gæta að útgjöldum. Heilbrigðisþjónustan myndi til að mynda þurfa að verða hagkvæmari fjárhagslega séð. 

Lífeyrissjóðirnir eru náttúrulega ansi stórir, en þeir eru partur af lífeyri einstaklinga svo það væri illgerlegt að þjóðnýta þá. 

Svo er alltaf hægt að hækka skatta, en þá veltir maður því fyrir sér hvort fólk sjálft geti ekki komið sér upp þessum sparnaði? Hagsmunir einstaklinga myndu þá ráða því hvort þeir myndu verja krónuna eða fjárfesta í öðru.

Það verður gaman að fylgjast með þessu máli þróast.


mbl.is Vilja skoða hugmynd um þjóðarsjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

WD-40

Í sjónvarpinu voru sýnd myndbrot af því þegar "mótmælendur" héldu á WD-40 brúsum og bjuggust við að svara táragasi lögreglunnar.

Halló - hversu fáfróður þarftu að vera til að ætla að gasa lögregluna?

Eftir því sem ég skil atburðarásina

1. Bílstjórar leggja bílum og loka vegi

2. Lögreglan biður þá um að fara

3. Bílstjórar vilja ekki fara

4. Lögreglan biður þá um að fara

5. Bílstjórar vilja ekki fara

6. Lögreglan bannar þeim að færa bílana sína

7. Einn bílstjórinn býst við að færa bílinn sinn 

8. Lögreglan meinar honum aðgang

9. Aðrir bílstjórar hjálpa honum að komast í gegnum lögreglumannaþvöguna

10. Öngþveiti 

11. GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS GAS

12. Allir hopa

13. Lögreglan myndar varnarlínu við enda malbiksins

14. Grjóti kastað í lögreglumenn (2 að því mér skilst af fréttum) 

15. Meintur grjótkastari hlaupinn uppi

16. 5 lögreglumenn berja meintann grjótkastara með kylfum

17. Lögreglumenn færa varnarlínuna framar og framar 

18. Sagan verður óskýr 

19. ... 

Ég væri til í svona skýrslu þegar innra eftirlit lögreglunnar klárar rannsókn sína.

En fyrst og fremst verða allir hlutaðeigandi að róa sig niður og játa afglöp. Lögreglumenn, Bílstjórar, Únglingar, Nasistarnir og konan með kornabarnið. 


mbl.is Mótmælin fóru úr böndunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Stephensen ritstjóri Moggans

Glóðvolgar fréttir

Er að horfa á rúv í beinni

Ofbeldi lögreglunnar er ofboðslegt. Þetta er nú óþarfi.

Það verður farið yfir þetta á ættarmótum sumarsins.

Minnir mig á handtök dönsku lögreglunnar, til dæmis þegar Sabbi labbaði eitthvað á skakkur heim af djamminu um daginn og var skellt upp við lögreglubíl vegna þess hann var of nálægt. 


Dagbók lögreglunnar

Það verður forvitnilegt að lesa dagbók lögreglunnar á morgun. Vonandi verður farið lið fyrir lið yfir atburðarásina.
mbl.is Mótmælin virtust stjórnlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

haha

Lögreglan dimmiterar við Suðurlandsveg. 

Þeir ættu frekar að fara úr óeirðabúningunum ef þeir vilja ná stjórn á svæðinu.  


mbl.is Eggjakast og nasistabúningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur einhver rakið atburðarásina almennilega?

Var táragasi beitt á steinkastandi múg eða öfugt?

Mér finnst lágmark að það verðir farið ofan í saumana á þessari valdbeitingu framkvæmdavaldsins. 


mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á þetta nú að fyrirstylla?

Kann enginn listina við ofbeldislaus mótmæli?


mbl.is Lögreglumaður á slysadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband