Gott mál

Afar góð ákvörðun að formaðurinn bjóði sig fram í Reykjavík.

Ferskir vindar blása um Sigmund, væntingar til Framsóknarflokksins hafa risið og munu rísa á næstunni. Enda hefur Framsóknarflokkurinn í sögulegu ljósi verið sá flokkur sem fólk gerir hvað mestar kröfur til. Það sjáum við léttilega á fjölmiðlaumfjöllun síðustu áratuga, að ég tali nú ekki um bloggin síðustu misseri.

Ég hef fulla trú á því að Sigmundur nái að uppfylla þær gífurlegu væntingar sem almenningur gerir til Framsóknarflokksins. Enda góður drengur á ferð.

Óska Sigmundi góðrar lukku og hlakka til að heyra meira.


mbl.is Sigmundur Davíð býður sig fram í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband